Handverkshúsið   |   Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi  |   Sími: 555-1212  

Trausti Tryggvason
Fjölhæfur og reyndur handverksmaður og kennari í sköpun úr tré og málmi

Sveinspróf í húsasmíði Akranesi 1971.
Húsasmíðameistari 1974.
Löggiiltur húsasmíðameistari Stykkishólmi1977 og Borgarbyggð 2006.
Framhaldsskólakennari 1992. Grunnskólakennari 1994.
Sótt 42 námskeið í líffræði og handverki frá árinu 1991.



Helstu áhugamál mín tengjast handverki, náttúrunni og dýrahaldi. Hef verið virkur fuglaskoðari í meir en 50 ár. Við fuglaskoðun með myndavél um hálsinn klifrandi í fuglabjörgum að merkja fugla ( fyrir 40 kílóum +) varð smá saman til safn mynda sem birtust í bókum Guðmundar Páls Ólafssonar og ýmsum tímaritum tengdum náttúrunni. Frá barnæsku hefur stangveiði í vötnum verið ráðandi þáttur í lífi mínu yfir sumartímann og stundum á veturna.  Bestu stundirnar við fjallavötnin eru eftir sólsetur í svarta myrkri með olíulugtina, vakandi eða sofandi.

Starfandi húsasmiður í Trésmiðjunni Ösp Stykkishólmi á árunum 1967 - 1986. Bryti á Breiðafjarðarferjunni Baldri 1986 - 1994. Starfandi kennari við Barnaskólann á Hallormsstað 1975 - 1976. Starfandi kennari við Grunnskóla Stykkishóms frá árinu 1994. Námsgreinar smíðar, líffræði og heimilisfræði. Kennari eldriborgara í Stykkishólmi frá árinu 2008. Stundakennari við Fjölbrautarskóla Vesturlands Akranesi árin 1996 - 2003. Námsgreinar Líffræði og Grunnteikning. Stundakennari við Fjölbrautarskóla Snæfellinga frá árinu 2006. Námsgreinar Grunnteikning, fagteikningar húsasmiða, véltrésmiði og almennar smíðar. Verktaki (Silfurskógar ehf.) við Laugargerðisskóla Eyja - og Miklaholtshreppi frá árinu 2005. Námskeiðahald  (af og til) á vegum Símenntunar Vesturlands frá árinu 2005. Námskeiðahald á vegum Handverkshússins frá árinu 2005. Handverksvinna og námskeiðahald á vegum Silfurskóga ehf. frá árinu 2005. Þátttakandi í Gallerí Lunda í Stykkishólmi yfir mörg ár. Formaður Skógræktarfélags Stykkishólms frá árinu 1997



Öll námskeið þessa leiðbeinanda